
Miðstöð velsældarhagkerfis á Íslandi
Gott líf innan þolmarka Jarðar
Við viljum þróa samfélag þar sem öllum er gert kleift að lifa góðu og innihaldsríku lífi – innan þolmarka Jarðar.
Til þess þurfum við hagkerfi sem þjónar fólki og náttúru, ekki öfugt.

Hvað er velsældarhagkerfi?
Efnahagslífið er tæki til að skapa gott samfélag – ekki markmið í sjálfu sér
Velsældarhagkerfi er hagkerfi sem setur velsæld fólks, félagslegt réttlæti og heilbrigði náttúrunnar í forgrunn.
Hagvöxtur mælir ekki nærri því allt það sem skapar raunveruleg verðmæti í samfélaginu. Í velsældarhagkerfi spyrjum við ekki aðeins hversu mikið hagkerfið vex, heldur líka hverju það raunverulega skilar fyrir fólk, samfélag og náttúru.
Á döfinni
-

Heimasíðan okkar er komin í loftið! 🎉
Á weall.is má nálgast allar helstu upplýsingar um Miðstöð velsældarhagkerfis, fylgjast með starfi samtakanna, lesa nýjustu fréttir og sjá hvaða viðburðir eru framundan.
-

Atvinnustefna til 2035: Óraunhæf og mótsagnakennd markmið
Getur hagkerfið vaxið endalaust á plánetu þar sem auðlindir eru takmarkaðar?
-

Morgunvaktin: Stofnun Miðstöðvar velsældarhagkerfis
Silja Elvarsdóttir og Ásgeir Brynjar Torfason ræddu um stofnun Miðstöðvar velsældarhagkerfis á Íslandi í Morgunvaktinni á Rás 1.
Meginreglur
Fimm meginreglur velsældarhagkerfis
WEAll hefur skilgreint fimm meginreglur sem lýsa því sem þarf að vera í forgrunni þegar hagkerfið er mótað.

1
Virðing
Öllum er tryggt það sem þarf til að lifa góðu, öruggu og innihaldsríku lífi.

2
Náttúra
Við erum hluti af náttúrunni og hagkerfið þarf að starfa innan þolmarka Jarðar.

3
Tilgangur
Hagkerfið á að þjóna almannahagsmunum og skapa raunveruleg verðmæti fyrir samfélagið.

4
Sanngirni
Hagkerfið stuðlar að réttlæti og sanngjarnri skiptingu auðs, valds, tækifæra og lífsgæða.

5
Þátttaka
Fólk hefur rödd og raunveruleg áhrif á ákvarðanir sem móta líf þess og samfélag.
Alþjóðlegt samstarf
Hluti af alþjóðlegri hreyfingu
Miðstöð velsældarhagkerfis á Íslandi er hluti af alþjóðlegu neti Wellbeing Economy Alliance. Við viljum læra af reynslu annarra landa og miðla íslenskri þekkingu, reynslu og nýsköpun út í alþjóðlegt samstarf.
25
lönd með starfandi WEAll-miðstöðvar
2018
árið sem WEAll varð til
5
ríki eru formlegir þátttakendur í WEGo – þar á meðal Ísland
2026
Miðstöð velsældarhagkerfis á Íslandi stofnuð
Allir geta tekið þátt
Velsældarhagkerfi verður ekki til á einum degi – og enginn getur byggt það einn. Með aðild að samtökunum styður þú starfið, tekur þátt í mótun þess og færð atkvæðisrétt á aðalfundi.
Fréttabréf
Fylgstu með starfi Miðstöðvarinnar, fáðu boð á viðburði og nýjustu fréttir um þróun velsældarhagkerfis á Íslandi og erlendis.
